Norconsult Ísland er Framúrskarandi fyrirtæki 2026

Við hjá Norconsult Ísland erum stolt af því að hafa hlotið viðurkenningu Creditinfo sem Framúrskarandi fyrirtæki 2026.

Viðurkenningin er veitt fyrirtækjum sem sýna fram á framúrskarandi rekstur og traustan fjárhagslegan grundvöll. Til að komast í hóp Framúrskarandi fyrirtækja þurfa fyrirtæki að uppfylla ströng skilyrði Creditinfo, meðal annars varðandi rekstrarafkomu, eiginfjárhlutfall, skil ársreikninga og lánshæfi.

Viðurkenningin er okkur því ánægjuleg staðfesting á traustum rekstri og góðum grunni fyrirtækisins, um leið og hún er hvatning til að halda áfram á sömu braut.

Guðrún Huld Sigrúnardóttir og Sigurbjörn Bárðarson tóku við viðurkenningunni fyrir hönd Norconsult Ísland. Viðurkenningin er ánægjuleg staðfesting á þeim trausta grunni sem fyrirtækið byggir á og þeim árangri sem starfsfólk okkar hefur skapað í sameiningu.

Árangur sem þessi verður ekki til af sjálfu sér. Hann byggir á fagmennsku, metnaði og góðu samstarfi starfsfólks okkar. Við erum stolt af viðurkenningunni og þökkum öllu okkar fólki fyrir þeirra mikilvæga framlag.

 

Nánar um Framúrskarandi fyrirtæki hjá Creditinfo