Windmills

Endurnýjanleg orka

Norðurlöndin þurfa meiri orku og það þarf að fjárfesta í aukinni orkuframleiðslu. Í tæp 100 ár hefur Norconsult verið að þróa raforkukerfi og í dag erum við með stærsta teymi norðulandanna af tækniþekkingu í endurnýjanlegri orku.

Við bjóðum uppá eftirfarandi þjónustu

Frá árinu 1928 hefur Norconsult átt mikinn þátt í uppbyggingu vatnsaflsvirkjana og raforkukerfa. Markmiðið hefur alltaf verið að leggja okkar af mörkum með sérfræðiþekkingu til að bjóða upp á hreina og áreiðanlega raforku til samfélagsins. Hlutverk okkar sem lykilaðili í uppbyggingu raforkukerfisins gerir það að verkum að við þekkjum vel aðstöðu viðskiptavina okkar og tryggjum samfellu í greininni.

Listinn yfir vatnsaflsvirkjanir sem Norconsult hefur komið að á undanförnum árum er víðtækur og við höfum nýtt reynslu okkar frá vatnsafli í sólarorku, vindorku og orkugeymslu. Við leysum verkefni á besta mögulega hátt til að mæta þörfum þínum og hugum að framleiðslu, gæðum, hagkvæmni og umhverfi.

Í dag nær starfsemi okkar yfir allan endurnýjanlega orkuiðnaðinn og við erum í samstarfi á öllum skrifstofum okkar og mörkuðum og söfnum réttri reynslu og sérfræðiþekkingu fyrir hvert verkefni. 

Við höfum sérfræðiþekkingu á umhverfis- og sjálfbærni, vélbúnaði, rafmagni og flutningskerfum, stíflum, byggingarhönnun, auk framkvæmda og landtöku. Með þessu úrvali af þjónustu fullnægjum við öllum þörfum viðskiptavina okkar.

 

  • Thorgeir Holm Olafsson

    Managing Director

  • Hjalti Sigursveinn Helgason

    Structural engineer

  • Sigurbjorn Bardarson

    Structural engineer

  • Birgir Hrafn Hallgrimsson

    Gruppeleder

  • Hafa samband við okkur

    Hafa samband