Rekstrartekjur Norconsult námu 2,3 milljörðum norskra króna á þriðja ársfjórðungi 2026, samanborið við 2,2 milljarða á sama tímabili árið áður. Leiðrétt EBITA nam 242 milljónum norskra króna, samanborið við 204 milljónir á þriðja ársfjórðungi 2025.
Lífrænn tekjuvöxtur, að teknu tilliti til dagatalsáhrifa, var 1% á fjórðungnum. Leiðrétt EBITA-hlutfall, einnig að teknu tilliti til dagatalsáhrifa, hækkaði úr 9,3% í 9,8%.
„Við höfum lagt að baki ársfjórðung sem einkenndist af áframhaldandi vexti á norrænum markaði sem hefur að mestu haldist stöðugur. Jafnframt náðum við góðum árangri í rekstrinum þar sem leiðrétt EBITA-hlutfall hækkaði um hálft prósentustig í 9,8%. Á fyrstu níu mánuðum ársins hefur lífrænn tekjuvöxtur verið 5%, samhliða bættri arðsemi,“ segir Egil Hogna, forstjóri Norconsult.
Sterk verkefnastaða og nýir samningar
Norconsult tryggði sér nokkra mikilvæga samninga á þriðja ársfjórðungi og jókst verkefnastaða félagsins í 7,9 milljarða norskra króna.
Meðal nýrra verkefna er hönnun nýs miðpalls og göngubrúar við Grefsen-járnbrautarstöðina í Noregi. Þá mun Norconsult annast verkhönnun nýrrar 132 kV raflínutengingar og spennistöðvar í Bjørke, sem er mikilvægt verkefni til að tryggja afhendingaröryggi raforku á svæðinu.
Félagið hefur jafnframt styrkt stöðu sína á Norðurlöndum með kaupum á danska fyrirtækinu Franck Miljø & Geoteknik, sem sérhæfir sig í umhverfis- og jarðtækniráðgjöf, og norsku landslagsarkitektastofunni Østengen & Bergo.
Aukin áhersla á gervigreind
Norconsult hefur á undanförnum mánuðum stigið mikilvæg skref í þróun og innleiðingu gervigreindar og aukið notkun á eigin gervigreindarlausnum. Nú nýta yfir 1.000 starfsmenn fyrirtækisins þessar lausnir, sem tengja saman helstu verkfæri félagsins á sviði arkitektúrs, verkfræði og rekstrar, með það að markmiði að efla sköpunarkraft, framleiðni og gæði.
„Gervigreind snýst fyrst og fremst um að sameina tæknina og þá öflugu fagþekkingu sem býr innan Norconsult. Með því að nýta gervigreind samhliða sérfræðiþekkingu okkar, gögnum og verkfærum getum við leyst verkefni á skilvirkari hátt, skoðað fleiri valkosti og varið meiri tíma í þær flóknu faglegu ákvarðanir sem skapa viðskiptavinum okkar virði,“ segir Egil Hogna.