Brúarsmíði á sjó og að næturlagi
Brúin er stálbrú með steyptu brúargólfi og einkennandi V-laga steinsteyptum stöplum. Undirstöður hennar hvíla á steypufylltum stálrörastaurum sem eru boraðir niður í berg. Við gerð undirstaðna á sjó koma saman stauraborun, kafaravinna, uppsetning þurrkvía og steypuvinna neðansjávar. Framkvæmdirnar krefjast nákvæmra mælinga og samhæfingar sérhæfðra vinnuflokka og búnaðar.
Stór hluti vinnunnar fer fram að næturlagi vegna nálægðar við Reykjavíkurflugvöll. Háir kranar og önnur tæki þurfa að rúmast innan takmarkana vegna flugöryggis og því verður að skipuleggja ákveðna verkþætti utan opnunartíma flugvallarins. Veður, sjávarföll og tiltækir vinnutímar gera jafnframt sérstakar kröfur til undirbúnings, öryggis og viðveru eftirlits.