Norconsult hefur unnið að endurnýjun stjórnkerfis Sultartangastöðvar í samstarfi við Landsvirkjun. Verkefnið hófst árið 2023 og hlutverk Norconsult felst í verkefnastjórnun og framkvæmd verkefnisins. Fyrstu þremur áföngum verkefnisins hefur verið lokið. Í þeim fólst meðal annars uppsetning nýrra stjórnkerfa fyrir vélasamstæður og hverflaaflsstýringar, samtals fyrir 125 MW. Einnig voru nýir lágspennuskápar fyrir rafala hannaðir og settir upp. Norconsult sá jafnframt um rýni hönnunar og eftirlit á verkstað meðan á uppsetningu stóð. Hluti merkja- og lágspennustrengja var endurnýjaður og nýjum stjórnbúnaði og hugbúnaði komið fyrir. Verkefnið er liður í endurnýjun tæknibúnaðar Sultartangastöðvar og stuðlar að áframhaldandi öruggum og áreiðanlegum rekstri hennar.