SCADA-kerfi fyrir kerskála Norðuráls
Norconsult hefur unnið að fjölbreyttum verkefnum fyrir Norðurál frá árinu 2018. Eitt stærsta verkefnið er hönnun og innleiðing SCADA-kerfis fyrir kerskála Norðuráls á Grundartanga. Markmið verkefnisins var að gera búnað og krana kerskálans sýnilega í skjámyndakerfi og veita aðgengi að rauntímaupplýsingum um stöðu búnaðar, mæligögn, aðvaranir og atburði. Kerfið nær til þjónustukrana, áltökukrana og færsluvagna í kerskálanum og voru skjámyndir hannaðar í Rockwell Automation FactoryTalk View. Norconsult annaðist þarfagreiningu í nánu samstarfi við Norðurál og vann að þróun og hönnun skjámynda. Að lokinni hugmyndavinnu tók Norconsult við hönnun og forritun kerfisins og kom jafnframt að innleiðingu þess og gangsetningu. Lausnin stuðlar að auknum áreiðanleika í rekstri krana kerskálans, auknum fyrirsjáanleika í viðhaldi og skilvirkari bilanagreiningu. Jafnframt styður kerfið við aukna sjálfvirkni og öryggi í starfseminni.