Reiknuð formbreyting stagfestuplötu samkvæmt ANSYS-líkani. Mesta formbreytingin er 0,21 mm. Aflagaða lögunin er sýnd hundraðfalt ýkt til að gera burðarhegðun plötunnar sýnilega.
Reiknuð formbreyting stagfestuplötu samkvæmt ANSYS-líkani. Mesta formbreytingin er 0,21 mm. Aflagaða lögunin er sýnd hundraðfalt ýkt til að gera burðarhegðun plötunnar sýnilega.

KLUF 374: Íslensk verkfræði í þróun sænska raforkuflutningskerfisins

Verkefni

KLUF 374: Íslensk verkfræði í þróun sænska raforkuflutningskerfisins

Viðskiptavinur

Svenska Kraftnät

Tímabil

2025

Norconsult Ísland vinnur með Norconsult í Svíþjóð og Svenska kraftnät að verkefninu KLUF 374. Markmið verkefnisins er að þróa og besta staðlaðar lausnir fyrir stagfestur háspennumastra af gerð A í sænska raforkuflutningskerfinu.

Verkefnið er hluti af áframhaldandi uppbyggingu, viðhaldi og endurnýjun flutningskerfis Svenska kraftnät. Lausnirnar eru ætlaðar bæði fyrir nýframkvæmdir og endurfjárfestingar í núverandi kerfi.

Norconsult Ísland gegnir veigamiklu hlutverki í verkefninu og ber ábyrgð á verkefnastýringu, hönnunarstjórn og hönnun. Sérfræðingar Norconsult á Íslandi annast meðal annars þróun hönnunarforsendna, burðarþolsgreiningar og samræmingu útreikninga og teikninga.

Í KLUF 374 er lögð áhersla á þróun og bestun járnbentra steinsteyptra stagfesta fyrir A-gerð háspennumastra. Fyrirliggjandi hönnun er yfirfarin og uppfærð með það að markmiði að:

  • uppfylla núverandi hönnunar- og öryggiskröfur;
  • bæta byggingarhæfni og endingu;
  • einfalda framleiðslu og framkvæmd;
  • stuðla að hagkvæmri efnisnotkun án þess að skerða burðarþol eða áreiðanleika.

Við hönnunina eru hefðbundnir handreikningar samræmdir við ítarleg töluleg reiknilíkön. Meðal annars eru notuð ólínuleg líkön í IDEA StatiCa og ANSYS til að greina burðarhegðun, staðbundna spennudreifingu, sprungumyndun og kraftflutning milli stáls og steinsteypu.

Verkefnið byggir á fyrri verkefnum Norconsult fyrir Svenska kraftnät á sviði undirstaðna og stagfesta. Þar á meðal er stöðlun undirstaðna fyrir 400 kV háspennumöstur af B- og H-gerð. Í þeim verkefnum voru þróaðar sameiginlegar hönnunarforsendur og staðlaðar lausnir sem styðja við skilvirkari hönnun, framkvæmd og langtímaeignastýringu.

Með KLUF 374 er byggt áfram á þeirri reynslu og þekkingu. Samstarf Norconsult á Íslandi og í Svíþjóð við Svenska kraftnät sameinar sérþekkingu úr fyrri háspennulínuverkefnum með það að markmiði að þróa traustar, hagkvæmar og staðlaðar lausnir fyrir framtíðaruppbyggingu sænska raforkuflutningskerfisins.

Spennudreifing í járnbendingu stagfestuplötu samkvæmt ólínulegu reiknilíkani í IDEA StatiCa. Greiningin er notuð til að sannreyna burðarhegðun og styðja við bestun járnbendingar.

Tengd fagsvið